Um okkur

Mynd: Arnþór Birkisson

Tímaritið Í boði náttúrunnar er gefið út af hjónunum Guðbjörgu Gissurardóttur og Jóni Árnasyni. Áhuginn á íslenskri náttúru og hvernig við tengjumst henni, nýtum hana og njótum er megininnblástur þessa nýja tímarits. Við viljum taka fólk úr alfaraleið til að upplifa landið, dýrin, jurtirnar og þá menningu sem náttúran hefur mótað, á ferskan og skemmtilegan hátt.

Ritstjórn og listræn stjórnun tímaritsins er í höndum Guðbjargar. Hún er með mastersgráðu í grafískri hönnun frá Pratt Institute, NY, og hefur starfað við hönnun og kennslu bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum frá 1997. Guðbjörg gaf út matreiðslubókina „Hristist fyrir notkun“ árið 2003 og starfaði sem framkvæmdastjóri Hönnunarvettvangs frá 2005 til 2007 og kom m.a. að stofnun Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Jón hefur að miklu leiti séð um að mynda fyrir blaðið en hann hefur unnið sem hugmyndasmiður, textamaður og hönnunarstjóri á auglýsingastofum bæði á Íslandi og í New York frá 1995. Þar hefur hann unnið við og stjórnað gerð fjölmargra markaðs- og auglýsingaherferða.

Hönnuður blaðsins ásamt Guðbjörgu er Bergdís Sigurðardóttir. Kristín Agarsdóttir hannaði fyrsta blaðið.

Blaðamenn og ljósmyndarar koma héðan og þaðan og erum við í stöðugri leit að góðum pennum sem hafa einig áhuga á viðfangsefninu.

GLEÐI OG GOTT INNIHALD ERU OKKAR VEGVÍSAR