Tilboð

NÝTT TÍMARIT     

Fyrir þá sem „fíla“ Ísland!

Í boði náttúrunnar er tímarit fyrir fólk sem kann að meta og vill njóta alls þess sem íslensk náttúra hefur uppá að bjóða. Við viljum að blaðið veiti lesandanum hvíld frá kapphlaupi hverdagslífsins og fjalli um hluti sem skiptir fólk máli. Hvort sem það vill slaka á úti í náttúrunni, rækta og vernda landið, njóta samveru með fjölskyldunni eða ganga á fjöll og upplifa ólík tilbrigði stórbrotinnar íslenskrar náttúru.

SJÓN ER SÖGU RÍKARI!  Flettið blaðinu með því að smella á það


Blaðið kemur út fjórum sinnum á ári (þrisvar fyrsta árið) og er efni hvers blaðs tengt hverri árstíð.

ÁRSÁRSKRIFT 3.045 kr.

(+ sendingarkostnaður) 30% afsláttur

Tímaritið kostar 1.015 kr.  í áskrift en 1.450 kr. í smásölu. Fyrsta árið verða gefin út 3 blöð.

Við höfum mikla trú á innihaldi blaðsins og ætlum því að bjóða áskrifendum uppá endurgreiðslu verði þeir fyrir vonbrigðum. Skila þarf blaðinu innan 10 daga, í góðu ástandi!

RAFRÆN ÁSKRIFT 2.175 kr

50 % afsláttur

Umhverfisvæn og ódýr leið til að gerast áskrifandi. Trén munu þakka þér!
Þú færð blaðið á 725 kr. í stað 1.450. Ca. kaffibolli og kleina! 

GÓÐ GJÖF

Áskrift er innihaldsrík og falleg gjöf við hvaða tækifæri sem er.

Matarkortið

Hver kannast ekki við  það vandamál að vera úti á landi og langa í eitthvað annað en sveittan hamborgara og franskar. Alvöru matarupplifun er vandfundin í þeim vegasjoppum sem standa við þjóðvegi landsins, enda er lélegur matur á landsbyggðinni eitt af aðalumkvörtunarefnum erlendra ferðamanna. Í boði náttúrunnar hefur með ábendingum frá þekktum matgæðingum og ferðalöngum handvalið 39 veitingastaði og kaffihús sem bjóða uppá einhvers konar matarupplifun fyrir fólk á ferðalagi um landið. Kortið er hægt að taka úr blaðinu og er bæði á íslensku og ensku.

Útgáfan

Tímaritið Í boði náttúrunnar er gefið út af hjónunum Guðbjörgu Gissurardóttur og Jóni Árnasyni.
Ritstjórn blaðsins er í höndum Guðbjargar en hún er með mastersgráðu í grafískri hönnun frá Pratt Institute, NY, og hefur starfað við hönnun og kennslu bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum frá 1997. Guðbjörg gaf út matreiðslubókina „Hristist fyrir notkun“ árið 2003 og starfaði sem framkvæmdastjóri Hönnunarvettvangs frá 2005 til 2007 og kom m.a. að stofnun Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Sumarið 2009 hóf göngu sína á Rás 1 útvarpsþátturinn „Í boði náttúrunnar“ sem var hugmynd Guðbjargar og Jóns. Þátturinn er um matjurtarækt en þau hjón kunnu ekkert fyrir sér á því sviðunu þegar þau byrjuðu, en áhugann vantaði ekki! Þátturinn er á laugardögum klukkan 16.00.

Næstu blöð

VETUR – Í boði náttúrunnar er næsta blað og kemur út í október 2010. Áhersla verður lögð á heilsu og handverk.
VOR – Í boði náttúrunnar kemur út í byrjun mars 2011 og þar verður lögð sérstök áhersla á ræktun og sjálfbærni.

GJAFIR FYLGJA MEÐ ÁSKRIFT TIL 16. JÚLÍ

Áskrifendur fá aðgang að gjöfunum þegar gengið hefur verið frá greiðslu

Í þessu riti Skóræktarfélags Reykjavíkur eru tekin fyrir 12 tré sem hafa fengið nafnbótina – Tré mánaðarins. Sagt er frá áhugaverðum tegundum, uppruna, sögu og rætt við eigendur þeirra.
Tré mánaðarins í Reykjavík.
Höfundur: Kristján Bjarnason.
www.heidmork.is


Tónskáldið Biggi Hilmarsson; best þekktur sem söngvari og gítarleikari Ampop hefur sent frá sér glænýja plötu sem inniheldur valin kvikmyndaverk og lög sem hann hefur unnið að síðastliðin ár í London, Evrópu og víðar. Hann gefur eitt lag af plötunni.
www.biggimusic.com
www.biggihilmarsson.com

Su doku þrautirnar sem eru hin fullkomna dægrastytting: Þær reyna á hugann og þolinmæðina og maður fær aldrei nóg! Forlagið gefur fimm þrautir úr Su doku bók sem er eftir manninn sem hleypti Su Doku æðinu af stað, Wayne Gould.
www.forlagid.is


25 gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu lýsir 25 hringleiðum. Kort og leiðbeiningar fylgja sérhverjum hring, ásamt lýsingu á því sem fyrir augu ber. Salka bókaforlag gefur fyrstu 12 síðurnar í bókinni og þar er að finna eina gönguleið um hraun og Straumsvík.
Höfundur: Reynir Ingibjartsson
www.salka.is

Hljóðbók.is gefur ævintýrið Nýju föt keisarans, eftir HC Andersen. Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona les. Ævintýrið er úr bókinni Eldfærin og fleiri ævintýri eftir HC Andersen.
www.hljodbok.is

Gönguleiðirnar á Hengilssvæðinu liggja um stórbrotið landslag, merkilegar jarðmyndanir og virkjanasvæði. Orkuveita Reykjavíkur gefur göngukort af Hengilssvæðinu sem er mjög vinsælt  útivistarsvæði.
www.or.is


Takk!