Sara Snædís Ólafsdóttir
Sara Snædís Ólafsdóttir er með BS gráðu í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og forystu frá Háskóla Íslands. Hún starfar hjá Fjárvakri ásamt því að kenna jóga í Hreyfingu og Yoga Shala. Hún hefur dansað ballet og nútímadans frá unga aldri hjá Klassíska Listdansskólanum og kláraði 1 ár við dansháskólann Laban í London. Síðustu ár hefur hún einbeitt sér meira að jóga og er nýkomin frá Goa á Indlandi þar sem hún lærði jóga hjá Mark Darby, Kino MacGregor og Tim Feldmann. Fylgstu með Söru á Instagram: @sarasnaedis